Dagskrá Icelandair Volcano Open 2013
Vestmannaeyjum 4. júlí – 7. júlí
Fimmtudagur 4. júlí
Upphitunar/Æfingahringur
Föstudagur 5. júlí
Kl. 10.00, Fyrri ráshópur ræstur út
Kl. 17.00, Seinni ráshópur ræstur út
Laugardagur 6. júlí
Kl. 08.00, Fyrri ráshópur ræstur út
Kl. 13.30, Seinni ráshópur ræstur út
Kl. 20.00, lokahóf, sjávarréttahlaðborð og verðlaunaafhending
Sunnudagur 7. júlí
Kveðjuhringur fyrir þá sem vilja

ATH. Það gætu orðið smá breytingar með tíma.
(Ekkert alvarlegt)
Verð
20.000 krónur
IKR pr. mann,
Hjónagjald kr. 35.000.
Greiða þarf staðfestingargjald fyrir 1. apríl
KEPPNISSKILMÁLAR
Leiknir verða tveir 18 holu hringir, föstudaginn 5. júlí
og laugardaginn 6. júlí 2012.

Leikið er eftir Stabelford punktakerfi og keppt í tveimur forgj.fl. 0-14.4 og 14.5-28.
Hámarks forgjöf sem veitt í mótinu er karlar 24 og konur 28.
Nándarverðlaun verða veitt á öllum par 3 brautum vallarins á síðari degi.
Auk þess eru sérstök verðlaun fyrir holu í höggi á 17. braut en sá sem það afrek vinnur fær STÓR VERÐLAUN FRÁ ICELANDAIR .
Ræst verður út af öllum teigum samtímis báða daganna í tveimur hópum og verða 1-2 ráshópar á hverjum teig. Fyrri dag er ræst út kl. 10:00 og kl 17:00 og seinni dag kl. 8:00 og 13:30. Seinni dag munu 8 punktahæstu keppendur í báðum forgjafaflokkum fara út í síðar ráshóp kl. 13:30.
Reynt verður að verða við óskum keppenda um ráshópa á fyrri degi en á þeim síðari ráðast ráshópar af árangri, fjölda punkta í báðum ráshópum þó með þeirri undantekningu sem áður var getið um um 8 efstu.
Keppendur skulu staðfesta komu sína á fyrri degi með greiðslu mótsgjalds og einnig skulu þeir mæta í skála á auglýstum tíma þegar ráshópar eru kynntir. Að öðru leyti er vísað í golfreglur GSÍ.