Aðalfundur GV fór fram í gær, 18 febrúar og var að venju valinn efnilegasti kylfingur klúbbsins sem og kylfingur ársins.
Rúnar Þór Karlsson var kylfingur ársins en vann hann Meistaramót GV 2020, óskum við honum til hamingju með það
Andri Erlingsson var valinn efnilegasti kylfingur klúbbsins, hann keppti á stigamótum GSÍ í sumar með góðum árangri ásamt því að hafa orðið klúbbmeistari í sínum aldursflokki. Andri er vel að titlinum kominn og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni
Comments