top of page
Search

Völlurinn í toppstandi og nóg um að vera

  • Writer: Rúnar Gauti Gunnarsson
    Rúnar Gauti Gunnarsson
  • 12 minutes ago
  • 1 min read

Nú er golfsumarið komið á fullt hjá okkur í klúbbnum og völlurinn í góðu ásigkomulagi. Flatir eru góðar eftir mildan vetur og sömu sögu má segja um brautir og teiga.


Á föstudaginn síðasta fór fram hið árlega Sjómannamót Ísfélags Vestmannaeyja. Full skráning var í mótið og veðrið lék við keppendur. Best allra lék 15 faldur klúbbmeistari GV, Örlygur Helgi Grímsson, en hann kom í hús á 65 höggum. Með flesta punkta í 1. flokki var Jónas Þór Þorsteinsson (39), sigurvegari 2. flokks var Kristinn Sigurðsson (42) og bestur sjómanna var Vignir Svavarsson (43).

Nokkur mót eru framundan en nú um helgina fer fram Opna Miðstöðvarmótið. Flottir vinningar eru í boði og veðurspáin ágæt, hvetjum alla til þess að skrá sig á golfbox.

  1. júní fer fram Jónsmessumót GV og 21. júní er Opna Unbroken mótið.


Að mótum undanskildum er nóg laust af rástímum næstu daga og vikur og er því tilvalið að skella sér til Eyja í golfferð, hvort sem um dagsferð eða lengri ferð er að ræða. Að sama skapi hvetjum við klúbbmeðlimi til þess að spila við toppaðstæður á meðan völlurinn skartar sínu fegursta.



 
 
 

Comments


+354-481-2363

©2025 by gvgolf.

bottom of page