Örlygur og Sóley klúbbmeistarar
- Rúnar Gauti Gunnarsson 
- Jul 14
- 2 min read

Meistaramót GV fór fram í nýliðinni viku. 70 keppendur voru skráðir til leiks í 16 flokkum, þarf af 11 í meistaraflokki karla og 5 í meistaraflokki kvenna. Veðrið lék við keppendur alla 4 keppnisdagana þó að stundum hafi verið vindasamt.
Örlygur Helgi Grímsson, 15 faldur klúbbmeistari GV hóf mótið best allra og kom í hús á 64 höggum og nýju mótsmeti á fyrsta hring. Lárus Garðar Long hóf mótið einnig vel en hann lék fyrsta hring á 67 höggum. Besta hring á öðrum keppnisdegi átti Sigurbergur Sveinsson er hann lék á 66 höggum. Ölli setti svo í fluggírinn á þriðja keppnisdegi þegar hann fékk 7 fugla og 11 pör og bætti mótsmetið sitt enn á ný með hring upp á 63 högg. Sigurinn var því aldrei í hættu hjá Ölla sem endaði mótið á nýju mótsmeti, 12 undir pari og er hann klúbbmeistari GV í 16. sinn.
Efstu þrjú sætin í meistaraflokki karla voru eftirfarandi:
- Örlygur Helgi Grímsson, -12 (64, 71, 63, 70) 
- Daníel Ingi Sigurjónsson, -2 (74, 67, 68, 69) 
- Sigurbergur Sveinsson, +2 (70, 66, 72, 72) 
Í meistaraflokki kvenna hóf Sóley Óskarsdóttir titilvörn sína af krafti með hring upp á 81 högg. Eftir fyrsta dag var hún með 10 högga forystu yfir Söru Jóhannsdóttur en bætti svo í með tvo hringi upp á 79 högg. Sigríður Lára Garðarsdóttir spilaði einnig gott golf í mótinu og bætti sig dag frá degi. Hún átti besta hring kvenna á lokahringnum á 81 höggi. Sóley er án efa efnilegasti kvenkylfingur sem við höfum átt lengi en hún er nú tvöfaldur klúbbmeistari GV aðeins 16 ára gömul.
Efstu þrjú sætin í meistaraflokki kvenna voru eftirfarandi:
- Sóley Óskarsdóttir, +49 (81, 79, 79, 90) 
- Sigríður Lára Garðarsdóttir, +69 (94, 88, 86, 81) 
- Katrín Harðardóttir, +84 (94, 88, 86, 81) 
Úrslit í öðrum flokkum voru eftirfarandi:
1. flokkur karla
- Kristgeir Orri Grétarsson, +14 
- Tómas Aron Kjartansson, +19 
- Heimir Halldór Sigurjónsson, +26 
1. flokkur kvenna
- Eva Aðalsteinsdóttir, +98 
- Elsa Valgeirsdóttir, +132 
- Harpa Gísladóttir, +158 
2. flokkur karla
- Björn Kristjánsson, +47 
- Helgi Bragason, +47 
- Devon Már Griffin, +61 
2. flokkur karla
- Anna Rós Hallgrímsdóttir, 81 punktur 
- Una Þóra Ingimarsdóttir, 64 punktar 
- Laufey Grétarsdóttir, 59 punktar 
3. flokkur karla
- Gunnar Páll Hálfdánsson, +84 
- Tryggvi Kristinn Ólafsson, +93 
- Atli Már Magnússon, +93 
4. flokkur karla
- Aron Gunnar Einarsson, 67 punktar 
- Bjarni Ólafur Marinósson, 67 punktar 
- Friðrik Óskar Egilsson, 56 punktar 
50+ karlar
- Júlíus Hallgrímsson, +3 
- Albert Sævarsson, +31 
- Guðjón Grétarsson, +45 
65+ karlar
- Þórður Halldór Hallgrímsson, +23 
- Sigurjón Pálsson, +42 
- Sigurjón Óskarsson, +49 
50+ konur
- Katrín Harðardóttir, +43 
- Elsa Valgeirsdóttir, +67 
- Harpa Gísladóttir, +82 






Comments